Fotbolti.net
14.09.26 - 10:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðný sneri aftur á völlinn eftir barnsburð - „Ótrúlegt ferðalag"

Guðný sneri aftur á völlinn eftir barnsburð - „Ótrúlegt ferðalag"
Canon

Mynd: Guðný Árnadóttir/Instagram

Kvennaboltinn
Guðný Árnadóttir sneri aftur á völlinn í gær þegar hún kom inn á sem varamaður er lið hennar Kristianstad sigraði Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni.

Guðný er mætt aftur eftir barnsburð en hún eignaðist frumburð sinn í vor.

Þetta var hennar fyrsti leikur frá því í lok september á síðasta ári.
Guðný sneri aftur í sigri Kristianstad - Thelma Karen lagði upp
TENGT EFNI

Guðný sneri aftur í sigri Kristianstad - Thelma Karen lagði upp

Það er svo góð tilfinning að spila mínar fyrstu mínútur eftir ár í hliðarlínunni vegna meðgöngu og endurheimtar eftir fæðingu. Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag. Ég er spennt að klára tímabilið með þessu magnaða liði," skrifar Guðný á Instagram.

Hún er 26 ára, á að baki 43 landsleiki og hefur verið hjá Kristianstad síðan 2024. Kristianstad er í 4. sæti deildarinnar þegar átta umferðir eru eftir. Hjá Kristianstad er Guðný liðsfélagi Alexöndru Jóhannsdóttur og Elísu Lönu Sigurjónsdóttur.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.