Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
   fös 06. júní 2025 22:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þögguðu niður í skosku stuðningsmönnunum - „Verðum að hætta hugsa um okkur sem litla liðið"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst ég sjá framfarir. Maður er ekki alltaf alveg fullkomlega ánægður, það eru alltaf litlir hlutir sem hægt er að bæta. Það eru nokkrir hlutir sem ég er ánægður með, komandi á svona erfiðan útivöll hvernig við stjórnuðum ákveðnum aðstæðum. Bæði pressuna þeirra og hvernig við náðum að breyta pressunni okkar eftir að við komumst að því hvernig byrjunarliðið þeirra var," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir sigur á Skotum í æfingaleik í Skotlandi í kvöld.

„Það var mikið af sendingarfeilum frá góðum leikmönnum sem klikkaði alltof mikið fyrir minn smekk. Hjartað og baráttan var til fyrirmyndar, við verðum að fara hætta hugsa um okkur sem litla liðið sem getur ekki spilað fótbolta. Við sýndum það á köflum og sýndum það sérstaklega í fyrri leiknum gegn Kósovó að við getum spilað góðan fótbolta," sagði Arnar.

Andri Lucas Guðjohnsen kom íslenska liðinu yfir snemma leiks.

„Aðdragandinn af því var virkilega ánægjulegur. Þetta var frábær pressa, það er ekki oft sem maður sér það á sterkum útivelli að íslenska liðið þori að stíga upp og pressa rétt. Svo vinnum við seinni boltann og svo er þetta hrikalega vel klárað með vinstri löpp hjá Andra Lucasi, fylgdi þar í fótspor pabba síns sem skoraði held ég á sama velli fyrir einhverjum 20 árum síðan," sagði Arnar.

Íslenska liðið þaggaði niður í stuðningsmönnum Skotlands strax í upphafi og þeir vöknuðu aldrei til lífsins og bauluðu á sína menn í lokin.

„Trixið þegar þú ferð á svona erfiða útivelli er að gera stuðningsmenn hljóðláta strax frá byrjun. Það var augljóst að við vorum með sjálfstraust til að spila strax frá byrjun. Stuðningsmenn létu vel í sér heyra í þjóðsöngnum og svo allt í einu þagnaði skoski hlutinn sem er mjög gott á svona útivelli. Í seinni hálfleik náðu Skotarnir ekki að gera neitt til að láta stuðningsmennina gleðjast og fá adrenalín sem kannski myndi hræða okkar stráka. Það var fagmannlega gert og þroskamerki hvernig við höndluðum það," sagði Arnar.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner