Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 22:15
Brynjar Ingi Erluson
Englendingar létu eitt mark duga - Skotar skoruðu fjögur
Harry Kane gerði sigurmark Englendinga
Harry Kane gerði sigurmark Englendinga
Mynd: EPA
Che Adams setti tvennu fyrir Skotland
Che Adams setti tvennu fyrir Skotland
Mynd: EPA
Enska landsliðið vann ósannfærandi 1-0 sigur á Nýja-Sjálandi, sem er neðst á heimslistanum af öllum HM-þjóðunum, í vináttulandsleik í kvöld.

Harry Kane skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks.

Thomas Tuchel skipti út öllu byrjunarliðinu í hálfleik og fékk hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha meðal annars að þreyta frumraun sína þrátt fyrir að vera ekki í lokahópnum fyrir HM. Hann varð þar með fimmti yngsti leikmaður í sögu Englands og sá yngsti síðan Jude Bellingham spilaði sinn fyrsta landsleik í nóvember árið 2020.

Þetta var næstsíðasti æfingaleikur Englands fyrir HM en liðið mætir Kosta Ríka í síðasta leiknum á Inter&Co-leikvanginum í Orlando í Flórída á miðvikudag.

Sviss og Ástralía gerðu 1-1 jafntefli í San Diego. Dan Ndoye skoraði mark Sviss á 14. mínútu en Tete Yengi jafnaði fyrir Ástralíu snemma í síðari hálfleik.

Panama og Bosnía og Hersegóvína gerðu 1-1 jafntefli. Nikola Katic skoraði fyrir Bosníu á 23. mínútu en Jiovany Ramos jafnaði fyrir Panama í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Báðar þjóðir hafa lokið undirbúningnum fyrir HM. Bosnía mætir Kanada í B-riðli HM á föstudag á meðan Panama spilar við Gana í L-riðli 18. júní.

Grænhöfðaeyjar unnu 3-0 sigur á Bermúda. Willy Semedo, Garry Rodrigues og Nuno Da Costa skoruðu mörk Grænhöfðaeyja sem hefja leik á HM gegn Spánverjum 15. júní.

Katar gerði á meðan markalaust jafntefli við El Salvador. Katar mætir Sviss í fyrsta leik sínum á HM eftir viku.

Skotar unnu 4-0 stórsigur á Bólivíu. Che Adams skoraði tvennu fyrir Skota og þeir Lawrence Shankland og Scott McTominay komust einnig á blað.

Skotland mætir Haítí í fyrsta leik sínum á HM en sá leikur fer fram 14. júní. Þjóðirnar eru í C-riðli mótsins með Brasilíu og Marokkó.

Panama 1 - 1 Bosnía og Hersegóvína
0-1 Nikola Katic ('23 )
1-1 Jiovany Ramos ('45 )

Bólivía 0 - 4 Skotland
0-1 Lawrence Shankland ('5 )
0-2 Scott McTominay ('23 )
0-3 Che Adams ('30 )
0-4 Che Adams ('45 )

Grænhöfðaeyjar 3 - 0 Bermúda
1-0 Willy Semedo ('33 )
2-0 Garry Rodrigues ('49 )
3-0 Nuno Da Costa ('90 )

England 1 - 0 Nýja-Sjáland
1-0 Harry Kane ('45 )

Katar 0 - 0 El Salvador

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner