Fotbolti.net
06.06.26 - 13:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jón Daði mættur á bekkinn hjá Selfossi

Jón Daði mættur á bekkinn hjá Selfossi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss heimsækir Fjölni í 2. deild klukkan 14 í dag. Það vekur athygli að Jón Daði Böðvarsson byrjar á bekknum hjá Selfyssingum.

Jón Daði hefur ekki verið í leikmannahópi Selfyssinga í síðustu tveimur leikjum. Það fóru sögur af því að hann hafi verið sendur heim af æfingu og framtíð hans hjá félaginu var í mikilli óvissu.
Jón Daði sendur heim af æfingu og var utan hóps
TENGT EFNI

Jón Daði sendur heim af æfingu og var utan hóps

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 3 Selfoss
Selfyssingar eru með gríðarlega sterkt framherjapar í Jóni Daða og Viðari Erni Kristjánssyni sem var í agabanni fyrr í sumar en hann er í byrjunarliðinu í dag. Hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum.

Selfoss er í 4. sæti deildarinnar með átta stig eftir fimm umferðir, stigi á eftir Fjölni sem er í 3. sæti.

Byrjunarlið Fjölnir

Snorri Þór Stefánsson, Þengill Orrason, Patryk Hryniewicki, Orri Þórhallsson (fyrirliði), Árni Steinn Sigursteinsson, Viktor Andri Hafþórsson, Mikael Breki Jörgensson, Egill Otti Vilhjálmsson, Birgir Þór Jóhannsson, Einar Örn Harðarson, Sölvi Sigmarsson

Byrjunarlið Selfoss

Benjamín Jónsson, Ívan Breki Sigurðsson, Dagur Jósefsson, Daði Kolviður Einarsson, Bjarki Flóvent Ásgeirsson, Viðar Örn Kjartansson, Aron Fannar Birgisson (fyrirliði), Frosti Brynjólfsson, Eysteinn Ernir Sverrisson, Guðmundur Stefánsson, Aron Lucas Vokes

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar14+1729
2Selfoss14+626
3Kári14+1524
4Fjölnir14+521
5Víkingur Ó.14-421
6Kormákur/Hvöt14+1120
7Dalvík/Reynir14020
8KFA14+617
9Magni14-1715
10Þróttur V.14-713
11Hvíti riddarinn14-813
12KFG14-2413
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.