Lennart Karl, 18 ára gamall leikmaður Bayern, er niðurbrotinn eftir að í ljós kom að hann muni ekki fara með þýska landsliðinu á HM í sumar.
Karl meiddist aftan í læri á æfingu landsliðsins en hann skrifaði færslu á Instagram þar sem hann tjáði tilfinningar sínar eftir að í ljós kom að hann muni missa af HM.
Karl meiddist aftan í læri á æfingu landsliðsins en hann skrifaði færslu á Instagram þar sem hann tjáði tilfinningar sínar eftir að í ljós kom að hann muni missa af HM.
„Ég veit ekki hvar ég á að byrja en það er ólýsanlega sárt að missa af stærsta mótinu. Ég gerði allt til að vera klár fyrir HM. Því miður koma meiðsli oft upp á óheppilegum tíma," skrifaði Karl.
Assan Ouédraogo, tvítugur leikmaður Leipzig, tekur sæti Karl í þýska hópnum.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


