Rio Ngumoha, leikmaður Liverpool á Englandi, kom sér í sögubækurnar er hann kom inn af bekknum hjá enska landsliðinu gegn Nýja-Sjálandi í æfingaleik í kvöld.
Ngumoha, sem er 17 ára gamall, sýndi flotta takta með Liverpool á nýafstöðnu tímabili.
Hann skoraði frábært sigurmark snemma á leiktíðinni gegn Newcastle United og fékk fleiri tækifæri þegar leið á tímabilið. Alls skoraði hann þrjú mörk í öllum keppnum og gaf eina stoðsendingu.
Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, valdi hann ekki í 26 manna hópinn fyrir heimsmeistaramótið en hafði hann þó til taks á æfingasvæðinu og ákvað að gefa honum smjörþefinn af því að spila með landsliðinu þegar hann kom inn á gegn Nýja-Sjálandi á 57. mínútu leiksins í kvöld.
Það gerir hann að fimmta yngsta leikmanninum til að þreyta frumraun sína með Englandi og þeim yngsta síðan Jude Bellingham lék sinn fyrsta landsleik í nóvember 2020.
Staðan er 1-0 fyrir Englendingum þegar tuttugu mínútur eru eftir en Harry Kane gerði markið undir lok fyrri hálfleiks.
5 - At 17 years and 281 days, Rio Ngumoha is the fifth youngest player ever to debut for the England men's team, and the youngest since Jude Bellingham in November 2020 (17y 136d).
— OptaJoe (@OptaJoe) June 6, 2026
Starboy. https://t.co/0s13Z8KQXD


