Jose Mourinho, stjóri Tottenham, hefur tjáð sig um rifrildið hjá Hugo Lloris og Heung-Min Son í leiknum í kvöld.
Þegar flautað var til leikhlés hljóp Lloris að Son og byrjaði að húðskamma hann og þá ýti hann einnig í hann. Son brást illa við og þurftu samherjar þeirra að skerast í leikinn og aðskilja þá.
Þegar flautað var til leikhlés hljóp Lloris að Son og byrjaði að húðskamma hann og þá ýti hann einnig í hann. Son brást illa við og þurftu samherjar þeirra að skerast í leikinn og aðskilja þá.
Mourinho var hins vegar sáttur með að þeir hafi rifist.
„Þetta var fallegt, menn verða að leggja kröfur á hvorn annan. Ég var svo glaður með þetta!" sagði Mourinho.
„Þetta eru afleiðingar af fundunum okkar. Ef þú vilt kenna einhverjum um, kenndu þá mér um. Ég var gagnrýninn á strákana mína af því að þeir voru ekki gagnrýnir á hvor aðra."
Sjá einnig:
Þurfti að aðskilja Son og Lloris í hálfleik
Athugasemdir