Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 06. júlí 2020 14:33
Magnús Már Einarsson
Víkingur segir öll spjöldin röng - Sölvi harmar framkomu sína
Sölvi Geir Ottesen gengur til búningsklefa eftir að hafa fengið rauða spjaldið.
Sölvi Geir Ottesen gengur til búningsklefa eftir að hafa fengið rauða spjaldið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir leik liðsins gegn KR um helgina. Kári Árnason, Sölvi Geir Ottesen og Halldór Smári Sigurðsson, varnarmenn Víkings, fengu allir að líta rauða spjaldið í leiknum frá Helga Mikael Jónassyni dómara.

Í yfirlýsingu Víkings segir að félagið telji að í öllum tilfellunum þremur hafi dómarinn gert mistök með því að lyfta rauðu spjaldi. Víkingur skorar á dómaranefnd KSÍ að fara rækilega yfir málin.

Sölvi Geir, fyrirliði Víkings, tjáir sig einnig í yfirlýsingunni og hsegist harma viðbrögð sín eftir rauða spjaldið. Sölvi lét Einar Inga Jóhannsson, fjórða dómara, heyra það á leið sinni af velli.

Yfirlýsing Víkings
„Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir furðu sinni með framgöngu dómara í leik KR og Víkings á laugardag og skorar á dómaranefnd KSÍ að fara rækilega yfir málin. Að sama skapi teljum við framkomu Sölva Geirs Ottesen í kjölfar rauða spjaldsins sem hann fékk í leiknum óásættanlega. Það er ljóst að félagið verður án þriggja sterkra leikmanna á miðvikudag í leiknum gegn Val þar sem allir leikmennirnir eru á leið í leikbann. Það er skoðun okkar að dómarinn hafi gert mistök þegar hann lyfti rauða spjaldinu í öllum tilfellum. Mistök sem geta reynst félaginu ákaflega dýr."

Sölvi Geir Ottesen:
„Ég harma framgöngu mína eftir að hafa fengið brottvísun í leik KR og Víkings sl. laugardagskvöld. Í hita leiksins snarreiddist ég þar sem ég taldi mig órétti beittan eftir að leikmaður KR ýtti mér svo ég féll á annan leikmann liðsins. Dómari leiksins mat það sem viljaverk að vinstri handleggur minn hafi lent í anditi leikmanns KR sem lá á vellinum. Ég átti hins vegar ekkert sökótt við leikmanninn, ásetningurinn var enginn og ég var aðeins að reyna að verjast falli."

„Þrátt fyrir öll málsatvik á leikmaður með mína reynslu, og fyrirliði Víkings, hins vegar að vita betur og viðbrögð mín í hita leiksins voru mér, liðsfélögum og Knattspyrnufélagi Víking ekki til sóma."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner