Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. júlí 2022 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Santos hafnaði 17 milljón punda tilboði Newcastle
Angelo Gabriel (t.v.) er aðeins 17 ára gamall
Angelo Gabriel (t.v.) er aðeins 17 ára gamall
Mynd: EPA
Brasilíska félagið Santos hafnaði 17 milljón punda tilboði Newcastle United í Angelo Gabriel en þetta kemur fram í brasilísku útgáfunni af Goal.

Gabriel er 17 ára gamall vængmaður sem hefur komið mikið við sögu með aðalliði Santos á þessari leiktíð.

Hann hefur spilað 24 leiki, skorað 1 mark og lagt upp 3 til þessa og þykir með efnilegustu leikmönnum Brasilíu.

Gabriel er samningsbundinn til 2024 en hann er með ákvæði í samningnum sem leyfir honum að fara til Barcelona fyrir 35 milljónir evra, en spænska félagið ætlar ekki að nýta það vegna fjárhagsörðuleika.

Goal greinir frá því að Newcastle United hafi lagt fram 17 milljón punda tilboð í Gabriel en Santos hafnaði því.

Gabriel verður ekki 18 ára fyrr en í desember og gæti því spilað með liði í Evrópu fyrr en eftir áramót.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner