Fotbolti.net
06.07.26 - 15:04
Kári Snorrason

Trump dásamar Infantino og viðurkennir að hafa haft afskipti

Trump og Infantino eru góðir mátar.

Trump og Infantino eru góðir mátar.

Canon

Mynd: EPA

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór fögrum orðum um Gianni Infantino, forseta FIFA, á fréttamannafundi í Hvíta húsinu fyrr í dag.

Þar viðurkenndi Trump að hafa beðið Infantino um að endurskoða leikbann Folarin Balogun, markahæsta leikmanns Bandaríkjanna á mótinu, sem var og gert.

Balogun verður því til taks þegar Bandaríkin mætir Belgíu á miðnætti. Belgar ásamt fleirum hafa gagnrýnt ákvörðunina og hefur belgíska fótboltasambandið áfrýjað afléttuninni.
Trump lét afturkalla leikbannið
TENGT EFNI

Trump lét afturkalla leikbannið

„Ef Belgía vinnur leikinn geta Belgar orðið mjög stoltir. Ef það hefði unnið leikinn með leikmanninn fjarverandi hefði það verið önnur tilfinning,“ sagði Trump og hélt áfram.

„Það eina sem ég bað um var endurskoðun. Ég skipaði honum ekki að gera þetta. Hann er klár og harður maður, Gianni Infantino er klár og harður maður. Hlutabréfin í honum hafa farið í gegnum þakið. Hann er að gera frábæra hluti.“

„Mér finnst eins og allir bestu leikmennirnir ættu að vera inni á vellinum, þú getur ekki tekið bestu mennina í burtu,“ sagði Trump að lokum.



Trump vill sjá bestu leikmennina inni á vellinum.

Trump vill sjá bestu leikmennina inni á vellinum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.