06.08.12 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rondon kominn til Rubin Kazan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Salomon Rondon, sóknarmaður Malaga, er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við rússneska félagið Rubin Kazan.
Rondon er 22. ára gamall sóknarmaður frá Venesúela og verður hann fyrsti maðurinn frá Venesúela til að spila í rússnesku deildinni.

Malaga er í fjárhagsörðugleikum og hefur því verið að selja mikið af leikmönnum í sumar en Rondon var gríðarlega mikilvægur hlekkur liðsins á síðasta tímabili.
,,Malaga hefur komist að samkomulagi við Rubin Kazan í sambandi við félagsskipti sóknarmannsins Jose Salomon Rondon,\" stendur í yfirlýsingu félagsins.
Rondon á ellefu landsleiki að baki fyrir Venesúela og hefur verið eftirsóttur af stórliðum á borð við Juventus og AC Milan í sumar.