06.08.12 - 14:31
Elvar Geir Magnússon
Ravel Morrison til Birmingham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
West Ham hefur lánað miðjumanninn Ravel Morrison til Birmingham út komandi tímabil. Birmingham leikur í Championship-deildinni.
Þessi 19 ára leikmaður kom til West Ham frá Manchester United í janúar en náði ekki að vinna sér inn sæti í liðinu.
Þessi 19 ára leikmaður kom til West Ham frá Manchester United í janúar en náði ekki að vinna sér inn sæti í liðinu.
Með skiptunum yfir til Birmingham er vonast til að hann muni hljóta aukna reynslu af aðalliðsfótbolta en Birmingham setur stefnuna á að komast upp í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik.
Morrison hefur verið mikið í umræðunni vegna agabrota á sínum ferli en fyrr á árinu fékk hann refsingu fyrir ummæli um samkynhneigða sem ekki þóttu við hæfi.
Morrison hefur verið mikið í umræðunni vegna agabrota á sínum ferli en fyrr á árinu fékk hann refsingu fyrir ummæli um samkynhneigða sem ekki þóttu við hæfi.
