06.08.26 - 20:51
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal hefur áhuga á fyrirliða erkifjendanna

Cuti Romero er orðaður við Arsenal

Mynd: EPA

Cuti Romero er orðaður við Arsenal

Mynd: EPA
Athletic segir frá því í kvöld að Englandsmeistarar Arsenal hafa áhuga á því að fá argentínska miðvörðinn Cristian Romero frá nágrönnum sínum í Tottenham.
Samkvæmt miðlinum veit Tottenham ekki af áhuga Arsenal á Romero en félagið vill fyrir alla muni forðast að selja fyrirliðann til erkifjendanna í Norður-Lundúnum.
Romero er líklega á förum frá Tottenham og hefur Inter þegar náð samkomulagi við enska félagið um kaupverð. Argentínumaðurinn á þó enn eftir að semja við Ítalíumeistarana um kaup og kjör.
Atlético Madríd hefur einnig endurvakið áhuga sinn frá síðasta ári en Diego Simeone, þjálfari Atlético, vill ólmur fá landa sinn til félagsins.
Áhugi Arsenal kemur hins vegar verulega á óvart. Það eru 25 ár síðan félagið fékk síðast fyrirliða Tottenham en það var Sol Campbell árið 2001. Hann kláraði samning sinn og gekk síðan á frjálsri sölu til Arsenal í einni umdeildustu sögu enska boltans.
Síðasti leikmaðurinn sem fór á milli félaganna var William Gallas. Hann gekk til liðs við Tottenham frá Arsenal árið 2010.
Romero er 28 ára gamall og stefnir í að yfirgefa Tottenham eftir fjögurra ára dvöl. Félagið hefur þegar styrkt miðvarðastöðuna með Marcos Senesi og Jan Paul van Hecke.
Senesi kom á frjálsri sölu frá Bournemouth en Tottenham greiddi Brighton 52 milljónir punda fyrir Van Hecke.