Fotbolti.net
06.08.26 - 11:00
Kári Snorrason

Jói Kalli: Aldrei að vita nema að það komi inn annar framherji

Í leit að öðrum framherja.

Í leit að öðrum framherja.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svo er aldrei að vita nema að það komi inn annar framherji áður en að glugginn lokar. Við viljum gera vel í að styrkja hópinn,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir jafntefli liðsins gegn KR í gær.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur FH samþykkt tilboð Víkings í Kjartan Kára Halldórsson og gæti hann verið á förum frá félaginu. Þá er Úlfur Ágúst Björnsson farinn til Bandaríkjanna í nám.

„ Við munum gera eins vel og við getum til að finna rétta manninn til að koma inn í framlínuna. Við erum að fá (Kristján) Flóka til baka líka - við þurfum að koma öflugir inn í síðasta hluta tímabilsins,“ sagði Jói jafnframt.
Daninn framtíðarleikmaður
FH sótti danska framherjann Bastian Andersen á dögunum og kom hann inn af bekknum í gær. Bastian er tvítugur og segir Jói hann hugsaðan sem framtíðarleikmann Fimleikafélagsins.

„Hann er ungur strákur með ágæta kosti sem geta verið til þess fallnir að vera flottur framherji. Hann er að koma sér í enn betra stand og er framtíðarleikmaður fyrir okkur,“ sagði Jói.

Hvernig hlutverki er honum ætlað að vera í?
„Hann verður í sirka svona hlutverki; Getur komið inn fyrir okkur. Hann þarf að aðlagast leikstílnum, pressunni og hvernig við viljum sækja,“ sagði Jói að lokum.
Úlfur Ágúst er farinn út í nám í Bandaríkjunum.

Úlfur Ágúst er farinn út í nám í Bandaríkjunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ungur strákur með ágæta kosti sem geta verið til þess fallnir að vera flottur framherji.“

„Ungur strákur með ágæta kosti sem geta verið til þess fallnir að vera flottur framherji.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jói Kalli: Davíð og Kári eru væntanlega að ræða þessi mál

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.