06.08.26 - 10:09
Kári Snorrason
Arnar Freyr hitaði markverði KR upp

Frá leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sleit sin í hné í fyrstu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það styttist í endurkomu Arnars Freys Ólafssonar, markvarðar KR. Arnar tók í gær þátt í upphitun markvarða liðsins þar sem hann hitaði upp Halldór Snæ Georgsson og Sigurpál Sören Ingólfsson.
Arnar var ekki skráður á skýrslu en að upphitun lokinni fór Arnar upp í stúku og settist KR-megin.
Arnar var ekki skráður á skýrslu en að upphitun lokinni fór Arnar upp í stúku og settist KR-megin.

TENGT EFNI
Arnar með slitna sin í hné - Allt tímabilið í hættu
Arnar sleit sin í hné eftir tíu mínútur í viðureign KR og Keflavíkur í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
Fyrst um sinn var talið að tímabilinu hjá Arnari væri lokið strax í fyrstu umferð en batinn hefur verið hraðari en búist var við.
Halldór Snær var aðalmarkvörður KR í fyrra en Arnar hafði betur í samkeppninni á undirbúningstímabilinu og var búinn að vinna sér inn stöðu aðalmarkvarðar.