Fotbolti.net
06.08.26 - 10:20
Innkastið
Steypustöðin

Sterkasta lið 17. umferðar - Freyr bestur á Þjóðhátíð

Gísli Laxdal var maður leiksins gegn Víkingi.

Gísli Laxdal var maður leiksins gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin verður áhugaverðari og áhugaverðari og óhætt er að segja að 17. umferðin hafi verið skemmtileg. Hér er lið umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar.

Íslandsmeistarar Víkings gerðu 2-2 jafntefli við ÍA á Akranesi. Maður leiksins var Gísli Laxdal Unnarsson sem skoraði og lagði upp fyrir Skagamenn.

Fram fagnaði Þjóðhátíð í Eyjum með 2-1 útisigri á ÍBV. Freyr Sigurðsson heldur áfram að leika frábærlega fyrir Framara og var maður leiksins. Átti stóran þátt í fyrsta markinu þegar hann átti fyrirgjöfina inn á teiginn og skorar svo örugglega úr vítinu sem kom Fram í 0-2.

Jökull Andrésson markvörður FH átti algjöran stórleik þegar Hafnarfjarðarliðið náði stigi af KR 1-1 þrátt fyrir orrahríð KR-inga stóran hluta leiksins. Jökull hefur leikið frábærlega síðustu vikur.

Þórsarar hafa fundið gírinn og eru ósigraðir í þremur leikjum, með tvo stigra. Þeir unnu andlausu Breiðabliksmenn 1-0 á Akureyri. Ágúst Eðvald Hlynsson var valinn maður leiksins og þeir Yann Emmanuel Affi, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Fannar Daði Malmquist eru einnig í úrvalsliðinu eftir þennan öfluga sigur.

Keflavík vann 3-0 sigur gegn KA þar sem Sindri Snær Magnússon stýrði miðjunni eins og herforingi og kórónaði leik sinn með glæsilegu marki. Haraldur Freyr Guðmundsson er þjálfari umferðarinnar og Axel Ingi Jóhannesson er í úrvalsliðinu.

Þá vann Stjarnan mikilvægan 3-2 útisigur gegn Val þar sem Örvar Eggertsson skoraði dramatískt sigurmark. Benedikt Warén var maður leiksins, með mark og stoðsendingu.



Fyrri úrvalslið:
Sterkasta lið 16. umferðar - Markús Páll stóð upp úr í stórsigri
TENGT EFNI

Sterkasta lið 16. umferðar - Markús Páll stóð upp úr í stórsigri


Sterkasta lið 15. umferðar - Gyrðir og Aron beint í liðið
TENGT EFNI

Sterkasta lið 15. umferðar - Gyrðir og Aron beint í liðið


Sterkasta lið 14. umferðar - Jói Kalli þjálfari umferðarinnar
TENGT EFNI

Sterkasta lið 14. umferðar - Jói Kalli þjálfari umferðarinnar


Sterkasta lið 13. umferðar - Eyjamenn á hörkusiglingu
TENGT EFNI

Sterkasta lið 13. umferðar - Eyjamenn á hörkusiglingu


Sterkasta lið 12. umferðar - Kyssti merkið
TENGT EFNI

Sterkasta lið 12. umferðar - Kyssti merkið


Sterkasta lið 11. umferðar - Sjö úr stórkostlegri frammistöðu Víkings
TENGT EFNI

Sterkasta lið 11. umferðar - Sjö úr stórkostlegri frammistöðu Víkings


Sterkasta lið 10. umferðar - Gylfi veitti áritanir
TENGT EFNI

Sterkasta lið 10. umferðar - Gylfi veitti áritanir


Sterkasta lið 8. umferðar - Vatnhamar í fimmta sinn
TENGT EFNI

Sterkasta lið 8. umferðar - Vatnhamar í fimmta sinn


Sterkasta lið 7. umferðar - Nýja stjarnan heldur áfram að skína
TENGT EFNI

Sterkasta lið 7. umferðar - Nýja stjarnan heldur áfram að skína


Sterkasta lið 6. umferðar - Galið og óhemju sókndjarft
TENGT EFNI

Sterkasta lið 6. umferðar - Galið og óhemju sókndjarft


Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn
TENGT EFNI

Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn


Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti
TENGT EFNI

Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti


Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja
TENGT EFNI

Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja


Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur
TENGT EFNI

Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur


Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa
TENGT EFNI

Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa

Freyr Sigurðsson var bestur á Þjóðhátíð.

Freyr Sigurðsson var bestur á Þjóðhátíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gyrðir hefur komið frábærlega inn í Þórsliðið.

Gyrðir hefur komið frábærlega inn í Þórsliðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik17+829
5Keflavík17-522
6Valur17-719
7ÍA17-819
8Stjarnan17-1118
9ÍBV17-916
10KA17-1115
11Þór17-2415
12FH17-1114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.