06.08.26 - 12:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tekur fram skóna og klárar tímabilið með Þrótti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur og Sierra Marie Lelii hafa komist að samkomulagi um að hún taki fram skóna á ný og leiki með Þrótti í Bestu deildinni það sem eftir lifir tímabils.
Þróttur tilkynnir um endurkomu Sierru á samfélagsmiðlum sínum í dag. Hún er 33 ára og lék með Þrótti tímabilin 2023-25 en hún kom fyrst í Þrótt 2017. Hún hefur einnig leikið með Haukum, ÍH, SR og KÁ á Íslandi.
Unglingalandsliðsmarkvörðurinn Ninna Björk Þorsteinsdóttir fékk þá félagaskipti frá venslaliðinu KÞ og klárar tímabilið með Þrótti.
Þróttur heimsækir Stjörnuna í kvöld í 14. umferð Bestu deildar kvenna. Sá leikur hefst 19:15 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Þróttur er í 7. sæti, tveimur stigum frá 6. sætinu og þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

TENGT EFNI
Samdi um eitt sumar og lífið breyttist algjörlega
Úr tilkynningu Þróttar
Sierru er óþarft að kynna sérstaklega fyrir Þrótturum, hún kom fyrst til félagsins frá Bandaríkjunum árið 2017 en á að baki tæplega 70 leiki með Þrótti og hefur skorað í þeim 29 mörk.
Kristján Kristjánsson, formaður knd. Þróttar segir: „Það er frábært að fá Sierru aftur út á völl enda afburða leikmaður og mikil íþróttakona. Hún á eftir að styrkja hóp mfl. Þróttar verulega í lokabaráttunni í Bestu deildinni í ár. Við bjóðum hana velkomna á ný.”

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 13 | +25 | 30 |
| 2 | Breiðablik | 13 | +24 | 30 |
| 3 | Stjarnan | 13 | +5 | 22 |
| 4 | ÍBV | 13 | -1 | 21 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 13 | -7 | 16 |
| 6 | Fram | 13 | -9 | 16 |
| 7 | Þróttur R. | 13 | -5 | 14 |
| 8 | Þór/KA | 13 | -7 | 12 |
| 9 | Víkingur R. | 13 | -12 | 11 |
| 10 | Valur | 13 | -13 | 10 |