Fotbolti.net
06.09.12 - 20:32
Sebastían Sævarsson Meyer

David Bentley til FC Rostov á láni (Staðfest)

David Bentely er kominn til Rússlands.

David Bentely er kominn til Rússlands.

Canon

Mynd: Getty Images

David Bentely er genginn í raðir rússneska félagsins FC Rostov frá Tottenham á láni þangað til í janúar.

Þessi 27 ára kantmaður var aftarlega í goggunarröðinni á White Hart Lane og fékk því leyfi til að fara á láni.
Bentley kom til Tottenham árið 2008 frá Blackburn fyrir 15 milljónir punda og hefur spilað 42 deildarleiki með Lundúnarliðinu.

Hann hefur ekki spilað með Tottenham síðan nóvember 2010 en hann var lánaður til West Ham á síðustu leiktíð.

Þar spilaði hann einungis fimm leiki þar til hann gekkst undir aðgerð á hné og var í kjölfarið frá keppni í sex mánuði.

Nú fær Bentely tækifæri til að ná sér aftur á strik með FC Rostov og mun meðal annars spila með Florent Sinama Pongolle, fyrrum leikmann Liverpool, sem gekk til liðs við rússneska félagsins fyrr í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.