06.09.17 - 20:40
Brynjar Ingi Erluson
María Þórisdóttir í Chelsea (Staðfest)

María Þórisdóttir er komin til Chelsea

Mynd: Heimasíða Chelsea

María Þórisdóttir er komin til Chelsea

Mynd: Heimasíða Chelsea

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea kynnti í dag Maríu Þórisdóttur en hún kemur frá Klepp í Noregi. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
María, sem hefur spilað við góðan orðstír í Noregi, hefur leikið undanfarin ár með norska landsliðinu en Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handbolta, er faðir hennar.
Hún gekk í dag frá samningum við Chelsea en hún gerir samning til ársins 2019.
„Ég er mjög stolt af því að hafa samið við Chelsea. Þetta er draumur að rætast og ég hlakka til að kynnast stelpunum og komast í liðið,\" sagði María á heimasíðu félagsins.
Hún var partur af norska landsliðinu sem lék á EM í sumar en hún lék þar tvo leiki.