06.09.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Óli í GameTíví: Gaman að taka Englendinga í upprifjun í FIFA 18
FIFA 18 verður langbesti leikur sögunnar

Ólafur Jóelsson.

Mynd: Úr einkasafni

Mynd: KSÍ

Ólafur Jóelsson.

Mynd: Úr einkasafni
„Þetta er svo sannarlega langþráður draumur og ég er ánægður með að þetta hafi náðst inn,\" sagði Ólafur Jóelsson, tölvuleikjasérfræðingur í GameTíví og rekstrarstóri hjá Senu, við Fótbolta.net í dag eftir að ljóst varð að íslenska landsliðið verður í tölvuleiknum FIFA 18.
„Það er frábært fyrir íslenska FIFA spilara á öllum aldri að geta spilað sem landsliðið í þessum nýja leik. Verður gaman að fara „online“ sem Ísland og finna einhverja sem hafa valið enska landsliðið og taka þá í smá upprifjun.... eða tapa fyrir þeim, sem er líklegra í mínu tilfelli,\" sagði Ólafur léttur.
FIFA 18 kemur út þann 29. september næstkomandi og hægt verður að kaupa leikinn í sérstakri útgáfu á Íslandi.
„Þetta hefur mikið gildi fyrir íslenska spilara að geta spilað sem hetjurnar okkar og að þessu tilefni verður gert sérstakt hulstur utan um leikinn sem skartar íslenska landsliðsbúningnum og merki KSÍ.\"
„Fifa er einn vinsælasti tölvuleikur í heimi og er spilaður af tugum milljóna um allan heim og fleiri tugir þúsunda spila hann hér á landi.\"
Ólafur segir að FIFA 18 verði langbesti FIFA leikur sögunnar og hann reiknar með að leikurinn eigi eftir að seljast vel á Íslandi.
„Að mínu mati er Fifa 18 langbesta útgáfan af Fifa sem komið hefur út og frábærar breytingar sem eru á leiknum frá fyrri útgáfu. Grafíkin hefur tekið stakkaskiptum, meira lagt uppúr stemmingunni á völlunum, leikmenn taka betri ákvarðanir, spilun verið fínstillt til að gera leikinn betri og svo er glænýr söguþráður þar sem spilarar leiksins geta stýrt unga leikmanninum Alex Hunter í gegnum frumskóga knattspyrnuheimsins. Þannig að þegar góð gæði og uppáhalds landsliðið okkar haldast í hendur ætti það að hafa jákvæð áhrif á upplifun spilara og þar með á sölu leiksins,\" sagði Ólafur.
Sjá einnig:
Ísland er með í FIFA 18 (Staðfest)
KSÍ reyndi að fá kvennalandsliðið og Pepsi-deildina inn í FIFA 18
Guðni Bergs um FIFA: Telur ekki margar milljónir króna