Fotbolti.net
06.10.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Mickael Tavares til Fulham (Staðfest)

Tavares í leik með Middlesbrough.

Tavares í leik með Middlesbrough.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur gengið frá samningum við Mickael Tavares sem er djúpur miðjumaður sem var samningslaus.
Tavares sem er 29 ára gamall lék áður undir stjórn Martin Jol stjóra Fulham þegar þeir voru báðir hjá Hamburg í Þýskalandi. Hann var samningsbundinn Hamburg þar til í sumar.

,,Ég hlakka til að spila aftur undir stjórn Martin Jol,\" sagði þessi senegalski landsliðsmaður á vef félagsins.

Jol hafði keypt Tavares til Hamburg frá Slavia Prag í janúar árið 2009. Eftir að Jol hætti til að taka við Ajax eftir það tímabil var Senegalinn lánaður, fyrst til Nuremberg og svo til Middlesbrough tímabilið 2010-2011. Hann hefur spilað 25 landsleiki fyrir Senegal.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.