06.10.18 - 13:43
Ívan Guðjón Baldursson
Guðni Eiríksson tekur við FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Guðni Eiríksson hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH eftir að liðið féll úr Pepsi-deildinni í sumar.
Guðni hefur starfað lengi fyrir FH og var aðstoðarþjálfari í meistaraflokki kvenna 2015 og 2016. Þá gerði hann 2. flokk kvenna að Íslandsmeisturum 2015.
„Ég þekki vel til meistaraflokks kvenna hjá FH eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari þar í tvö ár og veit að þar er góður efniviður til staðar," segir Guðni.
„Við stefnum að sjálfsögðu að því að fara beint aftur upp í Pepsí deildina og ég hef fulla trú á því að verðum með mannskap næsta sumar sem gerir tilkall að Pepsí-deildar sæti. Ég er fullur tilhlökkunar fyrir verkefninu en núna fer á fullt undirbúningur fyrir næsta keppnistímabil."
Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður kvennaráðs FH, er ánægður með ráðninguna og segir félagið binda miklar vonir við hans störf.
„Mér líst mjög vel á að fá Guðna inn í þetta starf. Við þekkjum vel til hans frá því hann var aðstoðarþjálfari í meistaraflokki og þjálfari 2. flokks kvenna," sagði Árni Rúnar.
„Þess vegna bindum við miklar vonir hann og hans störf og höfum trú á því hann geti hjálpað okkar unga og efnilega liði við að komast aftur í deild þeirra bestu en þangað stefnum við að sjálfsögðu strax aftur."