Fotbolti.net
06.10.18 - 13:54
Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Kristján Guðmundsson er kominn í kvennaboltann. Hann tekur við liði Stjörnunnar.

Kristján Guðmundsson er kominn í kvennaboltann. Hann tekur við liði Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar en þetta var staðfest á fréttamannafundi hjá Stjörnunni rétt í þessu.
Kristján stýrði karlaliði ÍBV undanfarin tvö ár en tilkynnti eftir Íslandsmótið að hann væri hættur með liðið.

Hann tekur við starfinu af Ólafi Þór Guðbjörnssyni sem hafði þjálfað liðið frá árinu 2014 og skilað fjórum titlum í hús, tveimur Íslands- og tveimur bikarmeistaratitlum.

Kristján er á leið til Noregs i UEFA Pro nám og var ákveðinn í að þjálfa meðfram því námi.

Stjarnan er fyrsta kvennaliðið sem hann stýrir en hann hefur á undanförnum árum stýrt ÍBV, Leikni, Keflavík, Val, ÍR og Þór.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.