Fotbolti.net
23.11.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Franska deildin

Doue: sannfærður um að ég komi sterkari til baka

Doue: sannfærður um að ég komi sterkari til baka
Canon

Mynd: EPA

Desire Doue, sóknarmaður PSG, verður frá út tímabilið eftir að hafa slitið krossband í 3-2 sigri liðsins gegn Nice um helgina.

Doue mun gangast undir aðgerð á næstu dögum og í kjölfarið tekur við langt endurhæfingarferli.
PSG staðfestir slæm tíðindi af Doue - Fer í aðgerð á næstu dögum
TENGT EFNI

PSG staðfestir slæm tíðindi af Doue - Fer í aðgerð á næstu dögum

Hann er að vonum mjög sár yfir þessu en hann er sannfærður um að snúa sterkari til baka.

„Þetta er erfiður tími. Þessi meiðsli gera mig sorgmæddan. En ég er sannfærður um að ég komi sterkari til baka. Önnur áskörun, annað tækifæri til að bæta sig. Ég þakka öllum fyrir stuðningin og kærleikann sem þið sýnið mér," skrifaði Doue á Instagram síðu sína.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.