Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 06. nóvember 2019 21:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu alvöru darraðardans fyrir fyrsta mark Lo Celso fyrir Spurs
Mynd: Getty Images
Giovani Lo Celso skoraði í fyrri hálfleik sitt fyrsta mark fyrir Tottenham þegar hann skoraði gegn Red Star í Belgrad.

Markið kom á 34. mínútu leiksins eftir mikinn atgang í vítateig Red Star en Tottenham átti meðal annars tvær tilraunir í tréverkið áður en boltinn fór í netið. Staðan í leiknum er 0-3 fyrir Spurs þegar þetta er skrifað. Heung-min Son skoraði annað mark Spurs eftir sendingu frá Dele Alli. Son skoraði líkaþriðja markið eftir undirbúning frá Danny Rose.

Lo Celso lagði boltann á Harry Kane sem setti boltann í stöngina, Heung-min Son átti svo skot sem varið var rétt fyrir framan marklínu. Næst féll Dele Alli í teignum og boltinn barst yfir á Harry Kane á fjærstönginni. Hann átti skot-fyrirgjöf sem Son setti í slána af mjög stuttu færi.

Þaðan barst boltinn á Lo Celso sem skoraði loksins eftir þennan mikla darraðardans. Markið má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner