07.01.18 - 12:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mirallas til Olympiakos (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn belgíski Kevin Mirallas hefur verið lánaður til Olympiakos í Grikklandi út þessa leiktíð.
Mirallas, sem er þrítugur, hefur áður spilað með Olympiakos og þekkir vel til hjá félaginu. Hann fór frá því árið 2012 til að ganga í raðir Everton fyrir 6 milljónir punda.
Hann hefur í heildina spilað 186 leiki fyrir Everton og skoraði 38 mörk. Hann hefur hins vegar ekki átt fast sæti í liðinu á þessu tímabili og aðeins komið við sögu í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Mirallas hjálpaði Olympiakos að vinna gríska meistaratitilinn árin 2011 og 2012 með því að skora 34 mörk í 71 leik.
Hann á 59 landsleiki fyrir Belgíu og heldur enn í vonina að vera í hópnum sem fer á HM í Rússlandi næsta sumar.