Fotbolti.net
07.01.19 - 16:38
Ívan Guðjón Baldursson

Anna Björk til PSV (Staðfest)

Anna Björk til PSV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Anna Björk Kristjánsdóttir er búin að skrifa undir eins árs samning við PSV Eindhoven sem leikur í efstu deild í Hollandi.
Anna Björk er öflugur varnarmaður sem kom upp í gegnum unglingastarf KR en gerði garðinn frægan með Stjörnunni og hefur unnið sér inn 40 landsleiki.

Anna Björk hélt til Svíþjóðar fyrir þremur árum þar sem hún lék fyrst fyrir Örebro og svo Bunkeflo.

Anna Björk er 29 ára gömul og kemur inn í gífurlega sterkt lið PSV sem vermir toppsæti hollensku deildarinnar með 37 stig eftir 14 umferðir.

„Ég er gríðarlega stolt af því að vera fyrsta íslenska konan til að spila fyrir þetta stóra félag," er haft eftir Önnu á vefsíðu PSV.

Heimild: MBL

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.