Fotbolti.net
07.01.19 - 19:32
Ívan Guðjón Baldursson

Aston Villa fær Hause frá Wolves (Staðfest)

Aston Villa fær Hause frá Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birkir Bjarnason var að eignast nýjan liðsfélaga í kvöld en Kortney Hause var að skrifa undir samning við Aston Villa.
Hause kemur á lánssamningi út tímabilið frá Wolves og fylgir kaupmöguleiki með í samningnum.

Hause er 23 ára gamall miðvörður sem á 68 leiki að baki fyrir Wolves en engan þeirra í úrvalsdeildinni.

Hann er þó ekki aðeins frægur fyrir hæfileika sína á fótboltavellinum því hann gaf út lag og tónlistarmyndband á Youtube fyrir einu og hálfu ári síðan.

Aston Villa er tíunda sæti Championship deildarinnar um þessar mundir, fimm stigum frá umspilssæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.