Fotbolti.net
07.01.19 - 16:46
Hafliði Breiðfjörð

Gary Martin, Emil Lyng og Lasse Petry í Val (Staðfest)

Frá fréttamannafundi Vals rétt í þessu.

Frá fréttamannafundi Vals rétt í þessu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tilkynnti í dag að liðið hafi verið styrkt um þrjá erlenda leikmenn fyrir baráttu sumarsins.
Gary Martin og Emil Lyng hafa áður spilað hér á landi en auk þeirra kemur danski miðjumaðurinn Lasse Petry til félagsins frá Nordsjælland.

„Þetta sýnir fótboltaheiminum að við erum í þessu af alvöru," sagði Börkur Edvardsson formaður Vals við þetta tilefni.

Gary Martin er þekktur á Íslandi. Hann kemur til félagsins frá Lilleström í Noregi en hann hefur áður spilað mað ÍA, KR og Víkingi Reykjavík hér á landi.

Emil Lyng þekkja fótboltaáhugamenn líka síðan hann spilaði hér á landi með KA sumarið 2017 og skoraði þá 9 mörk. Hann kemur til félagsins frá Szombathelyi Haladás í Ungverjalandi.

Lasse Petry er miðjumaður sem kemur til félagsins frá Nordsjælland í Danmörku en hann spilaði á láni með Lyngby í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.