Fotbolti.net
07.01.19 - 12:58
Arnar Helgi Magnússon

Guðni Bergs: Ég er til í baráttuna

Guðni Bergsson og Erik Hamren

Guðni Bergsson og Erik Hamren

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Bergsson segist vera tilbúinn í baráttuna um formannssæti KSÍ en Geir Þorsteinsson tilkynnti á laugardag að hann myndi bjóða sig fram á móti Guðna.

Sjá einnig:
Geir Þorsteins býður sig fram til formanns KSÍ (Staðfest)
Guðni vissi hvað Geir var að gera - Kom á óvart
Bréf Geirs til allra aðildarfélaga KSÍ
„Ekki átti ég nú von á að fara í formannsslag við heiðursformann sambandsins. Það hefur verið unnið gott starf hér innan KSÍ síðustu 2 árin. Höfum verið framsækin og kraftmikil - ég er til í baráttuna," setti Guðni á Twitter reikning sinn í morgun.

Guðni sagði í samtali við Hörð Magnússon í íþróttfréttum Stöðvar 2 á laugardaginn að tíðindin hefði bæði komið sér á óvart og ekki.

„Ég vissi af því að Geir væri að velta þessu fyrir sér og væri í sambandi við fólk í hreyfingunni um það mögulega að fara fram. Hvað það varðar kom þetta ekki á óvart."



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.