Fotbolti.net
07.01.19 - 15:17
Arnar Helgi Magnússon

Iborra til Villareal (Staðfest)

Iborra til Villareal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Vicente Iborra er genginn til liðs við Villareal á Spáni frá Leicester.
Vicente Iborra kom til Leicester sumarið 2017 frá Sevilla á Spáni en hann hefur komið við sögu í átta deildarleikjum hjá Leicester á tímabilinu.

Claude Puel, stjóri Leicester gaf það út á dögunum að Iborra hefði fengið leyfi til þess að fara til Spánar vegna fjölskylduaðstæðna.

„Við gáfum honum fjögurra daga frí því hann þurfti að komast heim til fjölskyldunnar og svo sjáum við til með það hvort hann komi aftur til Leicester eða að hann skipti um lið, ég veit ekki hvort það gerist en það er mögulegt," sagði Puel.

Nú er orðið ljóst að hann kemur ekki til baka. Villareal er í harðri fallbaráttu á Spáni en liðið situr í 17. sæti deildarinnar, stigi frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.