07.01.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Steven Davis klárar samninginn hjá Rangers (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn þaulreyndi Steven Davis hefur verið lánaður til Rangers út tímabilið.
Davis er nýorðinn 34 ára gamall og rennur samningur hans við Southampton út næsta sumar.
Davis var fastamaður í byrjunarliði Southampton allt frá komu sinni frá Rangers sumarið 2012 og þar til á síðasta tímabili, þegar hann spilaði undir 30 deildarleiki í fyrsta sinn frá komu sinni til félagsins.
Davis hefur aðeins spilað þrjá úrvalsdeildarleiki á tímabilinu og ákvað stjórn Southampton að leyfa honum að yfirgefa félagið.