07.01.19 - 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Tata Martino tekinn við Mexíkó (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mexíkóska knattspyrnusambandið er búið að staðfesta ráðningu á Gerardo 'Tata' Martino sem nýjum landsliðsþjálfara.
Tata Martino er heimsþekktur þjálfari og gerði hann Atlanta United að meisturum í bandarísku MLS deildinni á síðasta tímabili.
Þar áður var hann við stjórnvölinn hjá argentínska landsliðinu og fyrir það þjálfaði hann Barcelona, Newell's Old Boys og landslið Paragvæ.
Martino tekur við keflinu af Juan Carlos Osorio sem stýrði Mexíkó í þrjú ár og kom liðinu í 16-liða úrslit á HM síðasta sumar.