Fotbolti.net
07.02.19 - 23:15
Arnar Helgi Magnússon

Carlos Queiroz tekur við landsliði Kólumbíu (Staðfest)

Carlos Queiroz tekur við landsliði Kólumbíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalinn Carlos Queiroz er tekinn við landsliði Kólumbíu en hann tekur við liðinu af Jose Pekerman sem hætti eftir Heimsmeistaramótið síðasta sumar.
Queiroz hefur komið víða við á þjálfaraferli sínum en hann hefur meðal annars þjálfað landslið Íran, Suður Afríku og Portúgals.

Hann er þó hvað þekktastur fyrir feril sinn sem aðstoðarþjálfari Sir Alex Ferguson hjá Manchester United.

Fyrsti leikur Kólumbíu undir stjórn Queiroz verður 22. mars þegar liðið leikur vináttuleik við Japan.

Nokkrar stórstjörnur eru í landsliði Kólumbíu en þar má helst nefna Radamel Falcao, James Rodriguez og David Ospina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.