07.02.19 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sturaro dýrasti leikmaður í sögu Genoa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus er búið að staðfesta söluna á Stefano Sturaro sem fer til Genoa fyrir metfé, eða 18 milljónir evra.
Sturaro er 25 ára miðjumaður sem ólst upp hjá Genoa en var seldur til Juve fyrir um 10 milljónir sumarið 2014.
Hann spilaði 90 leiki á þremur og hálfu ári en fékk sérstaklega lítinn spilatíma síðasta vor og var lánaður til Sporting í Portúgal um haustið. Þar spilaði hann ekki einn einasta leik vegna meiðsla á hásin og var lánaður til Genoa fyrir 1,5 milljón með kaupmöguleika.
Í gær var svo tilkynnt að Genoa hafi nýtt kaupmöguleikann og þurfi að greiða 16,5 milljónir í viðbót til Ítalíumeistaranna á næstu fjórum árum.
Genoa er í fallbaráttu ítölsku deildarinnar og seldi Krzysztof Piatek til AC Milan í janúar, en fékk Antonio Sanabria lánaðan í eitt og hálft ár. Sanabria á að fylla í skarð Piatek og hefur byrjað afar vel, með tveimur mörkum í tveimur leikjum.