07.02.19 - 18:00
Arnar Helgi Magnússon
Völsungur fær bandarískan leikmann (Staðfest)

Kaelon Kox.

Mynd: Völsungur.is

Kaelon Kox.

Mynd: Völsungur.is
Völsungur hefur samið við bandarískaleikmanninn Kaelon Fox og mun hann leika með liðinu í 2. deild næsta sumar.
Fox er 23 ára gamall og er fæddur í Atalanta en uppalinn í Louisville. Fox getur leyst ýmsar stöður á vellinum en hann hefur undanfarin ár spilað sem miðvörður, hægri bakvörður eða djúpur miðjumaður.
Fox hefur komið víða við á sínum leikmannaferli en hann hefur spilað fyrir Portland Timbers, Reading United AC og Mississippi Brilla. Hann hefur einnig spilað fyrir háskólann í Kentucky og Saint Francis.
„Ég hef alltaf viljað spila fótbolta á erlendri grundu og fannst mér Völsungur því vera fullkominn áfangastaður til að láta þann draum rætast og um leið að hefja knattspyrnuferill minn fyrir alvöru," segir Fox á heimasíðu Völsungs.
„Væntingar mínar fyrir tímabilinu eru mjög háar því ég er með mikið keppnisskap. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa klúbbnum að tryggja sér sæti í 1. deild"
Fox er væntanlegur til landsins í byrjun apríl.