Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. mars 2021 12:51
Aksentije Milisic
Stuðningsmenn Rangers flugu með borða yfir leik Celtic - „Sjáið þið okkur núna?"
Mynd: Getty Images
Mikið fjör er í gangi hjá Rangers og stuðningsmönnum þeirra en liðið er mjög stutt frá því að vinna sinn fyrsta deildartitil í tíu ár.

Í gær hópuðust nokkur þúsund stuðningsmenn saman fyrir utan heimavöll liðsins. Þeir sungu og kveiktu blys. Steven Gerrard, stjóri Rangers, sagðist skilja vel afhverju stuðningsmennirnir brutu sóttvarnarlögin.

Nú er í gangi leikur Dundee United og Celtic í skosku deildinni. Ef Celtic tekst ekki að vinna þennan leik þá er Rangers meistari.

Vinni Celtic hins vegar, þá fær Rangers tækifæri til þess að vinna titilinn á heimavelli Celtic í næst umferð en þeim bláklæddu myndi duga eitt stig úr þeim leik.

Mynd af borðanum sem stuðningsmenn Rangers flugu með yfir leik Celtic í dag má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner