Sif Atladóttir spilar sinn fyrsta leik í eitt og hálft ár þegar Kristianstad mætir U23 landsliði Svía í æfingaleik í dag.
Hin 35 ára gamla Sif spilaði síðast með Kristianstad í október 2019 en hún spilaði ekkert á síðasta ári þar sem hún eignaðist barn.
Sif er nú klár í slaginn á nýjan leik og spilar í kvöld.
Kristianstad er að undirbúa sig fyrir sænsku úrvalsdeildina en keppni hefst þar 18. apríl.
Elísabet Gunnarsdóttir er sem fyrr þjálfari Kristianstad en landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir er einnig á mála hjá félaginu.
Back in the orange jersey tonight 🧡🖤 https://t.co/sv3knv6R4j
— Sif Atladóttir (@sifatla) April 7, 2021
Athugasemdir