Regensburg 0 - 1 Werder
0-1 Yuya Osako ('52 )
0-1 Yuya Osako ('52 )
Werder Bremen er komið áfram í undanúrslit þýska bikarsins eftir 0-1 útisigur gegn Regensburg. Werder er í efstu deild en Regensburg í 2. Bundesliga, næstefstu deild.
Yuya Osako skoraði eina mark leiksins snemma í seinni hálfleik eftir langa sendingu frá Marco Friedl. Bremen mætir RB Leipzig í undanúrslitum og Dortmund mætir Holstein Kiel í hinni viðureigninni.
Í þýsku Regionalliga West (4. efsta deild, svæðisskipt) skoraði Kolbeinn Birgir Finnsson eina mark Dortmund II í 1-1 jafntefli gegn Preussen Munster á úitvelli. Markið skoraði Kolbeinn á 10. mínútu.
Hann var í byrjunarliði Dortmund í leiknum og er liðið með níu stiga forskot í toppsæti deildarinnar.
⏸ 1:1 steht es zur Pause in Münster. Das schwarzgelbe Tor erzielte unser isländischer U21-Nationalspieler Kolbeinn #Finnsson. Dranbleiben! pic.twitter.com/M8xwsw2G25
— Borussia Dortmund (@BVB) April 7, 2021
Athugasemdir