Andy Robertson þurfti að fara af velli í hálfleik vegna meiðsla þegar Liverpool vann magnaðan 4-0 sigur á Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Liverpool kom til baka eftir að hafa tapað fyrri leiknum 3-0 og er á leið í úrslitaleikinn í Madríd.
Robertson þurfti að fara af velli vegna meiðsla sem hann hlaut eftir að Luis Suarez sparkaði í hann.
Það var furðulegt hjá Suarez. Hann var að hlaupa og fór afar hátt með fótinn með þeim afleiðingum að Robertson meiddist.
Suarez, sem er fyrrum sóknarmaður Liverpool, fékk ekki blíðar móttökur í kvöld.
Eftir leikinn var Robertson spurður út í Suarez og var svar hans einfalt. „Hver er að fara í úrslitaleikinn?"
„Við erum að fara í úrslitaleikinn og það er það eina sem skiptir máli. Þetta lið er ótrúlegt."
Reporter: "Luis Suarez took you out..."
— Futbol News (@Tvvittergod1) May 7, 2019
Andy Robertson: “Who’s going to the final?” 😉#LIVBAR #LIVFCB #Liverpool pic.twitter.com/NlaRE13JCw
Athugasemdir