Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 07. maí 2021 08:30
Victor Pálsson
Pirraður á bekknum gegn Real á miðvikudaginn
Mynd: EPA
Christian Pulisic, leikmaður Chelsea, var svekktur á miðvikudaginn eftir leik liðsins við Real Madrid.

Pulisic byrjaði fyrri leikinn gegn Real í undanúrslitum en var svo settur á bekkinn í þeim seinni sem vannst, 2-0.

Bandaríkjamaðurinn skoraði í fyrri leiknum sem fór 1-1 og vonaðist eftir því að byrja síðari viðureignina.

Pulisic var pirraður þegar hann heyrði byrjunarliðið og viðurkenndi það í samtali við CBS.

„Ég var mjög pirraður. Það er ekki mikið annað að segja. Ég vildi spila frá byrjun eins og alltaf," sagði Pulisic.

„Ég hef þurft að sanna mig aftur og aftur. Ég leita alltaf til Guðs og hann gefur mér styrk. Þegar hann er fyrir aftan mig er ekkert sem fær mig stöðvað."
Athugasemdir
banner
banner
banner