Fotbolti.net
07.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

2. deild kvenna: Stórsigrar í öllum leikjum

Afturelding vann stórt

Afturelding vann stórt

Canon

Mynd: Afturelding

Hertz
Afturelding, Einherji og ÍR unnu öll stórsigra í 2. deild kvenna í gær.
Afturelding slátraði KFR, 6-1. Karen Dæja Guðbjartsdóttir skoraði tvívegis, en hún hefur verið sjóðandi heit með Mosfellingum og er komin með 7 mörk í deildinni.

Þetta var fjórði sigur liðsins sem er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki.

Hólmfríður Þrastardóttir skoraði tvennu í 5-0 sigri ÍR á Smára. Þetta var fyrsti sigur ÍR-inga í sumar en Smári er aðeins með eitt stig.

Einherji vann sannfærandi 4-0 sigur á Fylki. Coni Adelina Ion skoraði tvennu fyrir Einherja sem er í 3. sæti með 10 stig, en Fylkir var að tapa öðrum leik sínum og er áfram með 6 stig.

Smári 0 - 5 ÍR
0-1 Hólmfríður Þrastardóttir ('9 )
0-2 Hólmfríður Þrastardóttir ('30 )
0-3 Hildur Eva Hinriksdóttir ('36 )
0-4 Emilía Dís Óskarsdóttir ('43 )
0-5 Kristín Birna Sigurjónsdóttir ('71 )

Einherji 4 - 0 Fylkir
1-0 Borghildur Arnarsdóttir ('5 )
2-0 Eva Lind Magnúsdóttir ('8 )
3-0 Coni Adelina Ion ('69 )
4-0 Coni Adelina Ion ('79 )

KFR 1 - 6 Afturelding
0-1 Tera Viktorsdóttir ('13 )
0-2 Katla Ragnheiður Jónsdóttir ('30 )
0-3 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('45 )
0-4 Adna Mesetovic ('47, víti )
1-4 Soffía Náttsól Andradóttir ('51 )
1-5 Magðalena Ólafsdóttir ('53 )
1-6 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('80 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Einherji10+5024
2Vestri10+3524
3Fylkir9+5722
4Fjölnir9+3622
5Afturelding9+2521
6Dalvík/Reynir10-714
79-813
8Augnablik10-2013
9KFR10-427
10ÍR10-184
11Álftanes10-322
12Smári10-761
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.