Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 10:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu
Powerade
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Kvicha Kvaratskhelia, Bernardo Silva, Jurgen Klopp, Rio Ngumoha og fleiri koma til greina í pakka dagsins.

Morgan Gibbs-White, 26, leikmaður Nottingham Forest, er á óskalista Arsenal sem mögulegur kostur í stað Morgan Rogers, 23, framherja Aston Villa. Arsenal er í baráttu við PSG um Gibbs-White. (Sun)

Khvicha Kvaratskhelia, 25, vængmaður PSG, er leynilegi leikmaðurinn sem Florentino Perez ætlar að reyna við ef hann vinnur forsetakosningarnar hjá Real Madrid. (Teamtalk)

Jose Mourinho, nýr stjóri Real Madrid, vill fá Bernardo Silva eftir að portúgalski miðjumaðurinn yfirgaf Man City þegar samningur hans rann út í sumar. (AS)

Umboðsmaður Jurgen Klopp segir að Þjóðverjinn vilji ekki vinna sem þjálfari hjá félagi eftir að Enrique Riquelme, forsetaefni Real Madrid, sagðist ætla að reyna ráða þennan fyrrum stjóra Liverpool. (Sky Sports Þýskaland)

Tottenham hefur enn áhuga á Savinho, 22, og brasilíski vængmaðurinn ætlar að komast í burtu eftir að Man City hafnaði tilboði frá Tottenham síðasta sumar. (Mirror)

Federico Chiesa, 28, sóknarmaður Liverpool, segist þurfa að spila meira og hann mun ræða við Andoni Iraola, stjóra liðsins, áður en hann ákveður hvað hann gerir. (Gazzetta dello Sport)

Liverpool ætlar ekki að selja Rio Ngumoha þratt fyrir að Bayern hafi skoðað að fá þennan 17 ára gamla vængmann í sumar. (Sky Sports)

Harvey Barnes, 28, vængmaður Newcastle, er á óskalista Aston Villa. (Football Insider)

Leeds og Ipswich eru að berjast um Nick Pope, 34, markmann Newcastle. (Sun)

Russell Martin er í viðræðum við Leicester þar sem Englendingurinn íhugar að snúa aftur í þjálfun í ensku C-deildina. (Telegraph)
Slapp
banner