Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal komið í baráttuna um kantmann Porto
Mynd: EPA
Arsenal hefur skráð sig í baráttuna um William Gomes, kantmann Porto í Portúgal.

Gomes er tvítugur Brasilíumaður sem átti stórkostlegt tímabil með Porto, sem varð deildarmeistari í ár.

Hann skoraði 13 mörk og gaf tvær stoðsendingar í deildinni en hann er á óskalista margra stórliða fyrir sumarið.

Atlético Madríd og Manchester United hafa fylgst með Gomes, sem er með 80 milljóna evra riftunarákvæði í samningnum, og segir Globo Esporte nú að Englandsmeistarar Arsenal séu komnir í baráttuna.

Porto vill alls ekki missa Gomes en er þó reiðubúið að ganga að samningaborðinu ef félög eru tilbúin að greiða upphæð sem kemst í námunda við riftunarákvæðið.
Slapp
banner
banner