Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 14:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bellingham við Ngumoha: Átt framtíðina fyrir þér
Mynd: EPA
Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha, leikmaður Liverpool, spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir England í gær. Hann spilaði seinni hálfleikinn í 1-0 sigri á Nýja Sjálandi í æfingaleik.

Hann þótti standa sig mjög vel og var valinn maður leiksins.

Leikmenn enska landsliðsins fá hatt (e. cap) að gjöf eftir sinn fyrsta landsleik. Jude Bellingham færði Ngumoha hattinn sinn og sagði nokkur orð um unga drenginn.

„Við nutum þess allir að horfa og þú átt auðvitað bjarta framtíð fyrir þér hjá félaginu þínu og vonandi með okkur líka. Það er mín ánægja að gefa þér þetta því ég veit að þú munt spila enn fleiri leiki. Til hamingju," sagði Bellingham.

„Hann var frábær, ekkert hrjáði hann. Hann átti mjög gott tímabil með Liverpool og stjórinn gaf honum hans fyrsta leik og hann sýndi hversu góður hann er," sagði Jordan Pickford.
Slapp
banner
banner