Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
banner
   sun 07. júní 2026 19:04
Snæbjört Pálsdóttir
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Eimskip
Guðrún Arnardóttir segir íslenska liðið þurfa að sýna hugrekki gegn Spáni og þora að sækja á heimsmeistarana.
Guðrún Arnardóttir segir íslenska liðið þurfa að sýna hugrekki gegn Spáni og þora að sækja á heimsmeistarana.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Guðrún er ekki aðdáandi nýrra reglna um tímamörk í innköstum og markspyrnum
Guðrún er ekki aðdáandi nýrra reglna um tímamörk í innköstum og markspyrnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið mætir ríkjandi heimsmeisturum Spánar á þriðjudag í undankeppni HM. Guðrún Arnardóttir segir liðið hafa sýnt gegn Englandi að það geti staðið jafnfætis bestu liðum heims.

„Bara mjög vel, þetta verður skemmtilegur leikur. Það er gaman að mæta svona góðu liði og mér fannst við sýna það í síðasta verkefni á móti Englandi að við getum alveg átt alvöru leik á móti þessum liðum.“ segir Guðrún um komandi stórleik gegn Spáni. 


Ísland kemur inn í leikinn eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu, leik sem Guðrún viðurkennir að hafi ekki verið sá glæsilegasti á augað en engu að síður fagmannlegur.

„Þetta var kannski ekki fallegasti fótboltaleikurinn en mér fannst þetta samt bara svolítið fagmannlega gert hjá okkur. Mér fannst við vera betra liðið og mér fannst við vera með kontról á leiknum allan tímann. Við sköpuðum okkur alveg færi til að skora fleiri mörk líka.“

Mikið hefur verið rætt um nýju reglurnar varðandi tímamörk í innköstum og markspyrnum, hvernig upplifði Guðrún þetta í leiknum?

„Mér fannst þetta alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin. Eina sem ég heyrði allan leikinn var dómarinn að telja niður frá fimm, þó það væri ekkert verið að tefja. Fyrir mér má kannski alveg grípa í þetta þegar það er verið að tefja en það þarf ekki að gera það allan leikinn og í hverju einasta mómenti. Þetta var rosalega mikið og ekki eitthvað sem ég er aðdáandi af.“

Til að ná úrslitum gegn Spánverjum segir hún að íslenska liðið verði að sýna hugrekki.

„Við þurfum að vera svolítið hugrakkar, við þurfum að þora að verjast fram á við, halda í boltann og sækja á bakvið þær. Þær eru rosalega gott lið en við höfum sýnt það að við erum það líka.“

 „Við vitum að þetta eru leikmenn sem vilja mikið spila stutt, spila sig í kringum leikmenn, þannig við þurfum að passa okkur bara á að leyfa þeim ekki að fara í það. Vera með coveruð svæðin sem þær vilja leita í.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan:



Slapp
banner
banner
banner