Ísland mætir ríkjandi heimsmeisturum Spánar á þriðjudag í undankeppni HM. Katla Tryggvadóttir segir þó enga ástæðu til að óttast Spánverjanna.
„Ég er ekkert nema spennt, við vitum alveg á móti hverjum við erum að fara spila en þetta er bara tækifæri fyrir okkur að sýna okkur,“ segir Katla.
Ísland tók þrjú mikilvæg stig gegn Úkraínu í síðasta leik, en spilamennskan var kannski ekki sú besta.
„Þetta var kannski ekki fallegasti fótboltaleikur sem hefur verið spilaður en stigin voru vissulega mjög mikilvæg. Fyrst og fremst mikilvægt að taka þessi þrjú stig úr þessum leik og það vissum við fyrirfram.“
„Við erum búnar að fara á fund eftir leikinn og fara yfir varnarlega og sóknarlega hvað er hægt að gera betur og læra af þessu. Þetta er bara eitt annað skref í áttina að HM í Brasilíu.“
Mikið hefur verið rætt um nýjar reglur um tafir í innköstum og markspyrnum í leiknum, en Katla segist lítið hafa fundið fyrir því inni á vellinum.
„Persónulega pældi ég ekkert í þessum reglum þegar ég var að spila. Ég tek ekki innköst eða markspyrnur þannig ég þurfti ekkert mikið að vera hugsa út í það en þetta er eitthvað sem verið er að prófa.“
En hvað þarf Ísland að gera til að stríða heimsmeisturunum á þriðjudaginn?
„Það þurfa allir að eiga sinn besta leik á þriðjudaginn það er alveg vitað en þær eru ekki fullkomnar þannig ég held að það sé alveg hægt að stríða þeim."
Aðspurð hvað hún ætli sér að gera ef hún fær tækifærið gegn Spáni, stendur ekki á svörum hjá Kötlu
„Ég ætla bara að fara með kaldan haus inn í þetta, segja bara svolítið fokk it og reyna að kýla á þetta. Þýðir ekkert annað.“
Sjáðu viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.





















