Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 18:54
Elvar Geir Magnússon
Settu heimsmet í bylgju
Mynd: EPA
Í tilefni þess að HM fer af stað á fimmtudaginn safnaðist fólk saman úti á götu í Mexíkóborg til að freista þess að setja heimsmet í bylgju.

Bylgjan er þekkt athöfn á fótboltaleikjum og margir vilja meina að hún eigi uppruna sinn í Mexíkó en það er þó umdeilt. Allavega gerðu stuðningsmenn Mexíkó hana fræga á HM 1986.

Margir af þeim sem ákváðu að taka þátt í heimsmettilrauninni voru klæddir í mexíkóska landsliðsbúninginn en heimsmetabók Guinness er nú að skoða bylgjuna áður en mögulegt heimsmet verður staðfest.

Fjölmennasta bylgja sögunnar var á Nascar kappakstri í Tennessee Bandaríkjunum 2008 en 157.574 tóku þá þátt. Lengsta bylgjan kom í Portúgal 2007 og sú sem tók lengstan tíma var 17 mínútur og 14 sekúndur í Japan 2015.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp