Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 15:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tveir hafa skorað mark á minna en 80 mínútna fresti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er athyglisvert að skoða tölfræðina í Bestu deildinni og Mjólkurbikarnum í sumar. Elías Már Ómarsson, framherji Víkinga, og Kristófer Ingi Kristinsson, framherji Blika, hafa verið duglegir að skora.

Þeir hafa svarað gagnrýnisröddum. Elías Már var mikið í umræðunni á undirbúningstímabilinu, talað var um að hann gæti farið á láni frá Víkingi. Hann var hins vegar áfram og hefur skorað 11 mörk í deild og bikar. Það eru 76 mínútur á milli marka hans að meðaltali.

Framherjastaðan hjá Blikum var þá mikið í umræðunni. Kristófer Ingi á sína meiðslasögu og Blikar hafa leitað lengi eftir framherja.

Hann hefur hins vegar verið mjög sterkur fyrir liðið í sumar og einnig skorað 11 mörk í deild og bikar. Það eru 79 mínútur á milli marka hans.


Slapp
banner
banner