Fotbolti.net
07.07.20 - 06:00
Aksentije Milisic

Rodgers: Vardy getur komið okkur í Meistaradeildina

Rodgers og Vardy.

Rodgers og Vardy.

Canon

Mynd: Getty Images

Brendan Rodgers, stjóri Leicester City, hefur sagt frá því að Jamie Vardy geti tryggt liðinu Meistaradeildarsæti. Hann segir þá að önnur lið séu hrædd við Vardy og sú ógn sem stafar af leikmanninum.
Vardy varð á dögunum fyrsti leikmaður í sögu Leicester til þess að skora 100 mörk eða fleiri í ensku úrvalsdeildinni. Rodgers hefur hrósað Vardy mikið.

„Þetta er einstök saga með Vardy og hann er svo spennandi leikmaður," sagði Rodgers um Vardy.

„Hreyfingar hans og hraði hræðir liftóruna úr fólki. Þegar við spilum á útivöllum og Vardy færi sendingu inn fyrir vörnina þá finnur maður fyrir ótta hjá stuðningsmönnum andstæðingins. Hann er svo fljótur og banvænn."

„Það er mjög auðvelt að þjálfa Vardy. Hann er með frábært hugafar og hann elskar fótbolta. Hann mætir á allar æfingar með bros á vör."

Leicester er þremur stigum á undan Manchester United sem situr í fimmta sæti deildarinnar. Ljóst er að það er hörku barátta framundan um sæti í Meistaradeildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.